Thursday, January 27, 2011

Körfuboltadagur KKÍ

Körfuboltadagur KKÍ verður í Smáralindinni Laugardaginn 29. janúar næstkomandi í tilefni 50 ára afmælis KKÍ sem ber upp á sama degi. Á staðnum verða körfur fyrir alla aldurshópa og boltar þar sem leikmenn úr efstu deildum karla og kvenna munu stýra leikjum og stöðvum og allir geta prufað körfubolta.
Dagskrá hátíðarinnar:
14.00 Opnun hátíðarinnar í Smáralind
- Afmæliskaka í boði fyrir alla gesti
- Jóel Sæmundsson körfuboltamaður og leikari tekur við stjórninni og stýrir dagskrá og viðburðum.
14.10 Körfuboltastöðvar
leikmenn Iceland Express deilda sprella með gestum og gangandi.
- víti, drippl, skot, stinger, sendingar og fleira fyrir krakka til að prufa
14.30 Leikmenn úr Iceland Express deildum karla og kvenna sýna listir
- 3ja-stiga keppni milli sigurvegara Stjörnuleiks karla og kvenna
- Keppt í einfaldri þrautabraut á tíma
15.00 Formleg setning afmælisársins
Hannes Sigurbjörn Jónsson formaður heldur stutta tölu og kynnir árið, happdrættið og fleiri viðburði á árinu og setur afmælishátíðina og afmælisárið.
15.15 Latibær kemur í heimsókn
15.45 Körfuboltastöðvar halda áfram
- víti, drippl, skot, stinger, sendingar og fleira fyrir krakka til að prufa
17.00 Formlegri dagskrá lýkur
Að auki verða plaköt gefin, Playstation kassar með NBA Jam leiknum verður á staðnum fyrir gesti að prófa svo eitthvað sé nefnt.

No comments:

Post a Comment