Á mánudaginn 5. desember mættu 7 galvaskir drengir í Grindavík til að spila æfingaleik. Þessir 7 drengir voru Anton, Eiður, Kári, Jökull, Magni, Siggi og Yngvi Óskars. Grindvíkingar hafa á nokkuð sterku liði að skipa, sem hefur staðið sig vel í fyrstu 2 helgum íslandsmótsins, en þar hafa þeir endað í öðru og þriðja sæti í A-riðli.
Leikurinn á móti Grindavík fór ekki sérstaklega vel af stað hjá okkur og Grindavík náði góðu forskoti, komst m.a. í 14-2. Sóknarleikurinn í fyrsta leikhluta var stirður, sem og að vítanýtingin var slök, en fyrstu 6 vítin sem við fengum fóru forgörðum. Vörnin var þó góð og við náðum aðeins að saxa niður muninn áður en leikhlutinn var allur. Í öðrum leikhluta var sóknarleikurinn mun betri, við hlupum kerfið mjög vel og fengum auðveldar körfur eftir það. Baráttan í fráköstunum var með eindæmum góð, sem skilaði okkur mörgum aukaskotum og munurinn á milli liðanna minnkaði jafnt og þétt. Í þriðja leikhluta héldum við þessum góða leik áfram og þegar að um 5 mínútur voru eftir þá leiddum við leikinn með 5 stigum. Grindavík átti þó lokaorðið og settu niður nokkrar stórar körfur og unnu leikinn að lokum með 4 stiga mun.
Ég vil hrósa strákunum fyrir hvernig þeir spiluðu þennan leik. Það lögðu sig allir vel fram og börðust eins og ljón. Við sóttum mörg sóknarfráköst sem skiluðu okkur mörgum stigum. Varnarleikurinn var góður allan leikinn. Sóknin gekk vel að fyrsta leikhluta undanskildum, þar sem að leikkerfið skilaði mörgum körfum, sem og þegar að við komum boltanum inn í á stóru mennina og hlaupum í gegn til að fá sendingu.
Wednesday, December 7, 2011
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment